veik og aftur veik

Jesús kristur hvað ég er annars veik þessa stundina. Ég neyðist  til að vera á fótum út af litlu rúsínubollunni henni Sólveig Evu. Ég er ekkert smá pirruð á þessu þar sem ég er búin að vera meira og minna veik í mánuð get ég sagt ykkur. En núna er ég komin á pensilín og þá ætti ég að fara að lagast. Annars er það að frétta að Þór Þorlákshöfn er að fara að spila annan leikinn í úrslitum á móti Breiðablik. Við unnum fyrsta leikinn sem var hérna í höfninni á sunnudaginn og ef við vinnum leikinn í kvöld þá erum við komin í ÚRVALSDEILDHlæjandi JIBBÝ. Ég hef fulla trú á mínum mönnum. Ef við hins vegar töpum í kvöld þá verður úrslitaleikurinn á föstudaginn hérna heima og þá vinnum við alveg örugglega. Mikið hrikalega væri nú samt gaman að fá úrslitaleik hérna heima og vinna hann. Þá verður svo sannarlega haldið huge partý og síðan tætt á ball með "MEN IN BLACK" (eins og Gassi þýddi það fyrir Kanana) sem verður á Hótel Örk á föstudaginn. jæja ég hef hreinlega ekki orku í að skrifa meira. Endilega kommenta á þetta hjá mér ég get skrifað um allt sem þið viljið því ég hef skoðanir á öllu.

kv Íris "hóst,sniff,snýt"


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband