1.4.2006 | 12:42
jeiii nýtt blogg komið
Af hverju ekki??? mér er spurn???? jú ég sem sagt ákvað að fara að blogga aftur því ég hef svo margt merkilegt að segja. Líf mitt er uppfullt af allskonar skemmtiefni sem heimurinn verður að fá að kynnast. Ég er nú reyndar ný vöknuð núna þannig að það er ekki mikið sem ég get sagt akkúrat þessa stundina því ég er ennþá með stírurnar í augunum en þetta á eftir að breytast. Við Gassi erum að spá og spekúlera hvað gera skal í dag og mér líst einna best á það að fara smá ísrúnt hérna um suðurlandið, gætum jafnvel endað í Eden en það er reyndar svolítið þreytt því það er alltaf fari þangað þegar kaupa á ís. Gassi var eitthvað heitur fyrir því að fara í borg óttans en ég er ekki alveg að nenna því. Ekkert merkilegt í gangi þar frekar en fyrri dagin. Vonandi á ég eftir að hafa mínu fram sem gerist ekki oft. Svo í kvöld ætlum við hjónin að skreppa til Jóhönnu og Ragga í pínuoggu matarboð. Það verður tær snilld get ég lofað ykkur. Það er alltaf gott að sækja þau skötuhjúin heim. Mamma ætlar að passa krílin eða réttara sagt krílið og stóru börnin. Ég held nú samt að Unnar borði bara hjá mömmu en fari svo aftur heim því honum finnst best að sofa í sínu eigin rúmi. En Telma og Sólveig Eva verða um nóttina hjá mömmu. Jæja ég læt þessar línur duga í bili og reyni að vera sérstaklega dugleg að skrifa um allt og ekkert.
kv Íja píja
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.